Sjóminjasafnið í Ósvör
Ósvör Maritime Museum
Vitastígur 3 / Aðalstræti 21
Móttaka sími: 892-5744, Skrifstofa sími: 456-7507
Safnverðir símar: 869-1073 og 897-8486
Netfang: osvor@osvor.is
Forsíða

Opnun

 

Starfsmenn

 

Fróðleikur

Náttúrustofa

Náttúrugripasafn

 

English

Verstöðvar

Verstöðvar á Íslandi á 18. og 19. öld skiptust gjarnan í fjóra flokka.  Fyrst ber að nefna heimverin, en þá átti hver sveitabær sína heimvör sem róið var frá hverju sinni.  Ef margir sveitabæir lágu saman og fjölbýlt var sameinuðust menn um heimvör.  Útverin svokölluðu, voru andstæðan við heimverin, en þá yfirgáfu menn bæi sína og dvöldu í útvörinni á meðan vertíð stóð.  Viðleguver var svo þriðja tegundin, en frá þeim réru aðkomumenn sem höfðu aðsetur á nálægum sveitabæjum.  Fjórða afbrigðið var blandað ver.  Þaðan réru aðkomumenn úr öðrum héruðum og dvöldu í verbúðunum yfir vertíðina, auk þess sem heimamenn réru einnig.

 

Flestar verstöðvanna voru á Vestfjörðum, eða 125 af þeim 326 sem talið er að hafi verið á landinu í upphafi 18. aldar.  Voru þar bæði heimver og útver.  Verin voru þá yfirleitt staðsett utarlega í fjörðunum þar sem stutt var á miðin.  Á Brunnasandi, í Tálknafirði, í Arnarfirði, í Dýrafirði og í Önundarfirði voru staðsett stærstu útverin í fjórðungnum sem og í Bolungarvík, sem var stærsta og elsta verstöðin við Ísafjarðardjúp.


 

 

.